Heim
Póstfreyja
Er kominn tími til að setja upp nýtt tölvukerfi eða betrumbæta það gamla?  Þá er Netfreyja rétta lausnin fyrir þig!
Netfreyja er hagkvæmur netþjónn sniðinn að  þörfum þínum og hentar vel fyrir hvers konar starfsemi þar sem öryggi og stöðugleiki í tölvurekstri er höfð í fyrirrúmi. Með því að að halda kostnaði í lágmarki en öryggi í hámarki brýtur Netfreyja blað í íslenskum fyrirtækjalausnum. Með því að leigja tölvubúnaðinn gegn föstu mánaðarlegu gjaldi þarft þú ekki að leggja út í kostnaðarsöm tækjakaup á búnaði sem stöðugt þarfnast endurnýjunar og viðhalds.  Netfreyja kemur til þín uppsett og tilbúin til notkunnar.
Ekki eyða kröftum þínum í tímafrekan tölvurekstur Netfreyja sér um málin.
Netfreyjur eru þrjár; Skjalafreyja, Póstfreyja og Gagnafreyja en þær gegna misstórum og umfangsmiklum hlutverkum. Nánari upplýsingar um hverja Netfreyju fyrir sig er að finna hér á síðunni.
Netfreyja er á sérstöku kynningartilboði núna!  Hringdu í síma 557-7520


Netfreyja Skólavörðustígur 1a 557-7520 netfreyja@netfreyja.is
























































































































































































































































































































































































































































































































frjáls hugbúnaður, opinn hugbúnaður, hýsing, vefhönnun, heimasíðugerð, vef hýsing, tölva, tölvupóstur, vefumsjónarkerfi, rekstrarleiga, gögn, hýsing, tölvuþjónusta, Netþjónn, opensource, póstþjónn, server
Er kominn tími til að setja upp nýtt tölvukerfi eða betrumbæta það gamla?  Þá er netfreyja rétta lausnin fyrir þig!

Netfreyja er hagkvæmur netþjónn sniðinn að þörfum þínum og hentar vel fyrir hvers konar starfsemi þar sem öryggi og
stöðuleiki er haft fyrirrúmi.  Með því að halda kostnaði í lágmarki en öryggi í hámarki brýtur Netfreyja blað í
íslenskum fyrirtækjalausnum.  Með því að leigja tölvubúnaðinn gegn föstu mánaðarlegu gjaldi þarft þú ekki að leggja
út í kostnaðarsöm kaup á búnaði sem stöðugt þarfnast endurnýjunar og viðhalds.  Netfreyja kemur til þín uppsett og
tilbúin til notkunar.

Eyddu ekki kröftum þínum í tímafrekan tölvurekstur, láttu Netfreyju sjá um málin.

Netfreyjur eru þrjár, Skjalafreyja, Póstfreyja og Gagnafreyja en þær gegna mis umfangsmiklum hlutverkum.
Nánari upplýsingar um hverja Netfreyju fyrir sig er að finna hér á síðunni.

Netfreyja er á sérstöku kynningartilboði núna!  Hringdu í síma 557-7520


[Skjalafreyja]

Skjalafreyjan er traustur skráaþjónn sem býður upp á öfluga aðgangsstýringu og stuðlar þannig að bættu öryggi.
Með daglegri afritun er tryggt að engin mikilvæg gögn glatist. Með því að flytja afrit úr húsi með reglulegu
millibili er tryggt að jafnvel stórskaði, svo sem bruni, sprungin vatnsrör eða innbrot, geti ekki valdið gagnatapi.
Skjalafreyjan er einn traustasti skráaþjónn sem völ er á. Hún er einstaklega hagkvæm og einföld lausn fyrir alla
sem vilja geta gengið að mikilvægum gögnum vísum.

[Póstfreyja]

Tölvupóstur skipar sífellt stærri sess í daglegum samskiptum jafnt og viðskiptum. Það getur orðið mikið tjón ef
tölvupóstur glatast en jafnframt skiptir miklu máli að hafa aðgang að tölvupósti hvar sem er og hvenær sem er.
Miðlægur póstþjónn, Póstfreyja er lausnin. Jafnframt er Póstfreyjan traustur skráaþjónn sem býður upp á öfluga
aðgangsstýringu og stuðlar þannig að bættu gagnaöryggi. Dagleg afritun á pósti og skjölum tryggir að mikilvægar
upplýsingar glatast ekki þótt pósti eða skjölum sé eytt í ógáti. Gögnin verða í öruggum höndum sama hvað gerist.
Afrit sem eru flutt úr húsi tryggja að þrátt fyrir stórskaða svo sem eldsvoða eða innbrot eru gögnin örugg.


[Gagnafreyja]
Gagnafreyja er duglegust af freyjunum - heildarlausn fyrir þá sem þurfa flóknar tölvulausnir á einfaldan hátt.

Gagnafreyja er netþjónn sem sinnir bæði notendum innanhúss og allri helstu þjónustu sem mikilvægt er að hafa á
Internetinu, svo sem hýsingu á vefsíðu, póstþjónustu og ftp skráaþjónustu.

Jafnframt því að vera traustur skráaþjónn sem býður upp á aðgangsstýringu er Gagnafreyja öflugur póstþjónn sem
gerir notendum kleyft að nálgast póstinn sinn hvar og hvenær sem er á Internetinu. Með daglegri afritun er tryggt
að engin mikilvæg gögn glatist. Afrit sem flutt eru úr húsi með reglulegu millibili tryggja að jafnvel stórskaði
svo sem bruni, sprungin vatnsrör eða innbrot geti valdið gagnatapi.

Með Vpn þjónustu Gagnafreyjunnar geta notendur tengst hvaðan sem er frá Internetinu í gegnum dulkóðuð göng.
Þeir geta unnið með gögn líkt og þeir væru í sama herbergi og Gagnafreyjan. Ftp þjónn Gagnafreyjunnar gerir kleyft
að flytja stór skjöl inn á Gagnafreyju hvaðan sem er af Internetinu. Auðveldara er að flytja stór eða mikinn fjölda
skjala með þessum hætti en að senda þau í tölvupósti. Með ftp þjóni má líka bjóða utanaðkomandi að nálgast gögn á
Internetinu með einföldum hætti. Gagnafreyjan er einnig vefþjónn þar sem hægt er að hýsa vefsíðu sem auðvelt er að
halda utan um og breyta með þar til gerðu vefumsjónarkerfi.



[Pantanir]
Það er einfalt að panta Netfreyju. Fylltu út formið hér að neðan og við munum senda þér tilboð í þá Netfreyju sem
þér hentar. Einnig getur þú sent okkur tölvupóst eða slegið á þráðinn í síma 557-7520.

[Fyrirtækið]
Tæknihliðin ehf. sér um uppsetningu og rekstur Netfreyjunnar. Tæknihliðin hóf starfsemi árið 2004. Í dag þjónum við
margskonar fyrirtækjum, má þar nefna arkitektastofur, matvælafyrirtæki, stofnanir, innflutningsfyrirtæki og fyrirtæki
í sjávarútvegi, svo fátt eitt sé nefnt. Netfreyja er lausn sem byggir á áralangri reynslu okkar færustu tæknimanna
sem hafa viðamikla þekkingu og skilning á þörfum nútíma fyrirtækja. Öryggi, stöðugleiki og hagkvæmni eru viðmið sem
öll fyrirtæki ættu að setja í forgang þegar kemur að tölvukerfum og hefur þróun vörunnar öll miðast við að uppfylla
þau viðmið. Netfreyjur hafa verið í notkun hjá fyrirtækjum sem við þjónum undanfarin ár og gefið einstaklega góða raun.
Tæknihliðin bíður einnig upp á margskonar þjónustu aðra en leigu á netþjónum.
Kynnið ykkur endilega  málið á vefsíðu fyrirtækisins.



Nettengingar

Þrátt fyrir að Netfreyjan séu öflug heildarlausn sem hentar við flestar aðstæður þar sem gerð er krafa um öryggi og
stöðuleika við rekstur tölvukerfis þá takmarkast gæði þjónustunnar að einhverju leiti við þá Internettengingu sem er
á hverjum stað. Leigutaki ber ábyrgð á því að Internet tenging sé virk og að hraði tengingar sé í samræmi við þá
þjónustu sem Netfreyjan á að sinna. Í mörgum tilfellum verður leigutaki jafnframt að tryggja sér fasta IP-tölu fyrir
Internettengingu sína en það er auðsótt í samráði við þann Internetþjónustuaðila sem leigutaki á í viðskiptum við.
Rétt er þó að taka fram að í flestum tilvikum duga þær Internettenginar sem nú þegar eru hjá leigutökum svo ekki þarf
að koma til aukins kostnaðar vegna þessa.  Jafnframt eru allar innanhúss nettengingar, rafmagnslagnir og aðstaða fyrir
Netfreyju á ábyrgð leigutaka. Leigutaka ber að finna Netfreyju stað þar sem hún verður ekki fyrir hnjaski í hreinlegu
læstu rými.


Notendur

Fjöldi notenda skiptir máli þegar Netfreyja er pöntuð enda ákvarðast afl vélbúnaðarins sem Netfreyjan keyrir á meðal
annars af notendafjölda. Þegar talað er um notendur í þessu samhengi er gott að vita að hver notandi fær sitt heimasvæði
og tölvupósthólf (Póst- og Gagnafreyja). Einnig er átt við samtímanotendur sem táknar að ekki er hægt að panta Skjalafreyju
fyrir einn notanda sem margir notendur ætla sér svo að nota á sama tíma. Gert er ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika í
fjölda notenda enda starfsmannafjöldi fyrirtækja oft breytilegur. Ef stórvægileg breyting verður hinsvegar á notendafjölda
á leigutímabilinu getur komið til þess að endurskoða þurfi leigusamning.

Full uppsettar Netfreyjur

Skjalafreyja

Áður en við afhendum Skjalafreyju tilbúna til notkunar, höfum við stofnað þá notendur sem leigutaki tilgreindi þegar hann
pantaði hjá okkur. Skjalafreyjan kemur uppsett með heimsvæðum fyrir þessa notendur og einu sameignarsvæði. Heimasvæði eru
skráasvæði sem einungis einn ákveðinn notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur uppsett með Skjalafreyjunni nýtist
öllum notendum og gerir þeim kleyft að skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar sem ákveðinn hópur,
tveir eða fleiri notendur, hafa aðgang að. Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli Skjalafreyju inn á
algengustu netkerfi. Skjalafreyjan er í flestum tilfellum komin í notkun fáeinum mínútum eftir að hún hefur verið afhent.
Tæknimenn okkar geta að sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað.

Póstfreyja

Áður en við afhendum Póstfreyju tilbúna til notkunar höfum við stofnað þá notendur og pósthólf sem leigutaki tilgreindi
þegar hann pantaði hjá okkur. Einnig setjum við póstþjóninn upp fyrir það lén sem hann á að sjá um. Leigutaki leggur til
Internettengingu með fastri IP-tölu og tryggir að hraði tengingar sé í samræmi við fjölda notenda. Póstfreyjan kemur uppsett
með heimsvæðum og pósthólfum fyrir þessa notendur, og einu sameignarsvæði. Heimasvæði eru skráasvæði sem einungis einn ákveðinn
notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur upp sett með Póstfreyjunni nýtist öllum notendum og gerir þeim kleyft að
skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar sem ákveðinn hópur, tveir eða fleiri notendur hafa aðgang að.
Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli Póstfreyju inn á algengustu netkerfi. Tæknimenn okkar geta að
sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað.



Áður en við afhendum Gagnafreyju tilbúna til notkunar höfum við stofnað þá notendur og pósthólf sem leigutaki tilgreindi þegar
hann pantaði hjá okkur. Jafnframt eru útbúnir sér lyklar fyrir notendur sem gerir þeim kleyft að tengjast Gagnafreyjunni með
öruggum hætti í gegnum Internetið hvar sem þeir eru staddir. Póstþjónn er uppsettur fyrir það lén sem leigutaki tilgreinir.
Gagnafreyjan kemur uppsett með heimasvæðum og pósthólfum fyrir þessa notendur, og einu sameignarsvæði. Leigutaki leggur til
Internettengingu með fastri IP-tölu og tryggir að hraði tengingar sé í samræmi við þann fjölda notenda sem um ræðir.
Heimasvæði eru skráasvæði sem einungis einn ákveðinn notandi hefur aðgang að. Sameignarsvæði sem kemur uppsett með
Gagnafreyjunni nýtist öllum notendum og gerir þeim kleyft að skiptast á skjölum. Einnig er hægt að óska eftir sér svæðum þar
sem ákveðinn hópur, tveir eða fleiri notendur, hafa aðgang að. Meðfylgjandi verða leiðbeiningar um hvernig tengja skuli
Gagnafreyju inn á algengustu netkerfi. Tæknimenn okkar geta að sjálfsögðu aðstoðað við uppsetningu sé þess óskað.




Afritun

Í boði eru tvær tegundir af afritunum, innanhúss og utanhúss. Að taka innanhúss afrit er góð leið til þess að eiga afrit af
nýjustu skjölum sé þeim eytt í ógáti, eða þau tapast með öðrum hætti. Innanhúss afrit tekur skamman tíma og er því mögulegt að
taka afrit með fárra klukkustunda millibili. Utanhúss afrit eru eins og nafnið gefur til kynna, afrit sem flutt eru úr húsi.
Afrit sem er geymt annarsstaðar en upphaflegu gögnin er mikilvægara en innahúss afrit þar sem þá er tryggt að gögnin séu
ávallt til taks, þó svo að eitthvert óhapp eigi sér stað, svo sem eldsvoði eða innbrot. Utanhúss afrit eru flutt úr húsi með
aðstoð Internetsins í gegnum dulkóðuð göng. Einungis þær breytingar sem hafa átt sér stað frá síðasta afriti eru fluttar í
gagnasafn á okkar netþjónum. Með þessum hætti er hægt að eiga fullkomið afrit af stórum skráasöfnum ef eitthvað ber út af.
Fjöldi afrita sem eru flutt úr húsi með þessum hætti takmarkast af hraða Internettengingar leigutaka. Í flestum tilvikum
þarf ekki að auka hraða tengingarinnar en leigutaka ber að leggja til nettengingar í samræmi við fjölda utanhússafrita sem
um er samið.